Dísus

eitt barn er ekkert tvö eru tíu

sunnudagur, maí 07, 2006

Það ku vera komið vor, sundlaugarnar yfir fullar og reimin að sligast undan útiþyrstum fjölduanum. Ronja er orðin útikrakki og sagði mér í morgun þegar við fórum niður í fjöru að hún ætlaði langt í burtu og ég ætti ekki að koma með henni, svo fór hún að elta fugla og hlaupa ein. Ég og Hugi fylgdumst með úr fjalægð og ég kenndi Huga að henda steini í poll meðan ég spáði í þessari stelpu og nýum tendensum sem minna kannski á nöfnu hennar í bókinni.

miðvikudagur, apríl 19, 2006

Til hamingju Hugi
Tönn númer eitt er kominn. kannski í von um að fá bita hjá Ronjunni sem beit í páskaegg, birtist lítil hvít á páskadag. Byrjað nú samt á því að bíta í sig sjálfann innanmunns, áttaði sig ekki á þessu mikla eggvopni sem hann hafði eignast, en hann mun fatta það innan skamms og bíta frá sér.

þriðjudagur, apríl 11, 2006

Í páskafríi. Unaður einn. Í fyrsta skiptið í heila eilífð sem við förum ekki norður um páskana, oftast hefur það verið í snjóleysi og ófærð svona skíðalega séð, nú er hins vegar allt á kafi í dúnmjúkum englasnjó fyrir norðan og væri því hægt fyrir Ásdís að sýna skíðalistir sínar, hún er nefninlega létt núna og ekki með ó fyrir framan eins og síðustu árin. En nei nei við höngum hér fyrir sunnan í snjóleysi og viti menn, hvað gerist? það flykkjast öll ættmenni hingað suður því það virðist vera að ekki verði haldið upp á krossfestingu krists nema í góðum félagskap, það er mínum. Ekki veit ég þó hvernig foreldrar mínir fara að án mín í Englandi, og ég hef frétt að þarna suðurfá fái menn hvorki páskegg né málshátt.

mánudagur, mars 27, 2006

Ég sit innanum pappíra í hrúgum. Hef leift mér að fá lánað ýmislegt hjá fjarstaddri móður minni og er nú í svolítið of stórum en nokkuð þæjó og hlýjum fötum. Ætli ég kenni ekki þrá og söknuði um þessa þörf til að vera í hennar fötum. Eða þá að ég sé að reyna að setja mig í hennar spor sem framhaldsskólakennari á framabraut. Hægt að lesa mikið í þetta fataleysi Ásdísr.

laugardagur, mars 11, 2006

verkefni mitt næstu daga er að skrifa ritgerð um það afhverju ég vil vil komast inn í kennsluréttindanám og verða í framhaldi kennari. Ég er kominn með titilinn Góð innivinna, langt sumarfí.

föstudagur, mars 10, 2006

Neyðist ég ekki til að skrifa smá fyrst mín bloggandi móðir er að sína afköst í útlandinu fróða. Af mér er það að segja að ég fann krossgátu prógramm á netinu og er nú í mikluföndri við kennsluefnisgerð. Ronja segist vera á leiðinni í búðina og er ekki enn komin í háttinn, klukkan að ganga ellefu. Sund með ormana og Dóra minn, rauðvín yfir föstudags-sjónkanum. þetta venjulega. ljúft og gott.

miðvikudagur, desember 14, 2005

Ég er ómöguleg. Pikka og klikkhausast eitthvað um blogg sem kennsludrusl og svo nenni ég ekki einu sinni að pára á mitt auma blogg. Ritgerðir fræðilegar og flóandi í refferencium, kenningum og kennslufræðilegri hugmyndafræði. Ég slæ um mig með allskyns útlenskum og fer jafnframt út í myndmál og lýkingar. Eitt próf búið ein ritgerð send til riðurrifs og gagnrýni illalaunaðs háskólaprófesors, þá eru bara tvo meistaraverk ritsögunar eftir að flæða út úr fræðilegum haus mínum og inní tölvuna og út í óþreygjufullt háskólasamfélagið. Og þá mun ég fá mér rauðvín og baka piparköku.